| 1 | play | Add to Playlist | vísur fyrir þreytta fugla | 6:03 | €0.50 | x | |
| 2 | play | Add to Playlist | ufsanaggar | 6:29 | €0.50 | x | |
| 3 | play | Add to Playlist | guðmann stálfjöður | 4:26 | €0.50 | x | |
| 4 | play | Add to Playlist | útvarp kalli | 8:06 | €0.50 | x | |
| 5 | play | Add to Playlist | sakramenti hafliða | 2:50 | €0.50 | x | |
| 6 | play | Add to Playlist | hugljómun ostrusósunnar | 5:46 | €0.50 | x | |
| 7 | play | Add to Playlist | komdu nær mér afi | 4:54 | €0.50 | x | |
| 8 | play | Add to Playlist | bakvið þykka spjaldið | 4:13 | €0.50 | x | |
| 9 | play | Add to Playlist | blessun drottins | 1:33 | €0.50 | x | |
Album Info
Ummæli ánægðra hlustenda Per:Segulsvið.”Tónlist Pers mun slá þér gullhamra. Hún mun nudda sköflung þinn, minna þig á miðalda bronsnisti og dreifa glimmer yfir móður þína. Hún jafnast á við bestu hárnæringu, allra besta frunsumeðal og fínustu satínsloppa”
Yrja, ritari
”Per er náladofi svanga mannsins. Hann er þungur höggdeyfir á þilfari, goggrót straumandarinnar, ökli sílamávsins og naglaband emúans”
Jóhann, starfsmaður barnafatadeildar Hagkaups
”Svo krafmikill og yndislegur er hljóðveggur Pers, að hann mun hindra framgöngu óvina þinna. Lama þá og slá úr þeim uggtennurnar”
Egill, lögreglumaður á Hvammstanga.
”Hvað sem þú tekur þér fyrir hendur í lífinu, skaltu varast það að tónlist Pers og gamansemi hans séu aldrei langt undan. Sé Per þér nærri, mun heimurinn brosa við þér og tennur þínar verða eins beinar og fallegar og glermusteri”
Sif, húsmóðir á Selfossi.
Inngrip í sögu Per:Segulsvið
Einn stuttan fimmtudag í maí sat Per í blokkaríbúðinni sinni og gæddi sér á gúrkubrauði og drakk safaríkt kakómalt. Hann sat við eldhúsgluggann og horfði upp í móann, landspildu sem hafði veitt honum ómælda gleði í uppvexti sínum. Og hann hugsaði svo sem, “ég ætla að framkalla tónlist”. Þegar hann var búinn með tólf brauðsneiðar stóð hann upp, þurrkaði sér um munninn og sagði hann við móður sína, “móðir, ég ætla framkalla tónlist”. “Mjög fínt”, sagði móðir hans. Síðan þá hefur Per framkallað tónlist,
Per er mikill útivistarmaður og hann hefur gaman af sundi, fjallgöngu, fjallaklifri, teygjustökki, veiðum, bátasmíði, hjólreiðum, flugdrekum, módelsmíði, köfun og fallhlífastökki. Hann er þrefaldur íslandsmeistari í langstökki og á enn íslenska drengjametið í 100 metra skriðsundi.
Per hefur oft verið beðinn um að nefna helstu áhrifavalda sína í tónlist og hefur þá gjarnan nefnt eftirtalda, ekki endilega í þessari röð: Dennis Leary, Seal, Shellac, Gensis, Labradford, Helgi Björnsson, Uriah Heep, Auðunn Helgason, T-Rex, Sonic Youth og Keanu Reeves. Einnig er hann sérstakur aðdáandi Lenny Kravitz og Folk Implosion.Tónlist hans mætti einmitt setja svona til miðsvegar á milli tónlistar Seal og Sonic Youth. Hún er iðulega sett undir hattinn "hauskúpu vélmenna rokk" sem er hugtak sem Per sjálfum finnst orðið frekar útþynnt.
Margar hljómsveitir eru nú flokkaðar undir þá tónlistarstefnu sem að hans mati eiga þar ekki heima og hafa alls ekkert með hana að gera. Sjálfur mundi hann flokka sig sem meira svona indie.
Innblástur fær Per mikið úr íslensku náttúrunni. Sérstaklega móanum sem skilur að efra og neðra Breiðholt og umferðareyjanna á breiðholtsbautinni. Mörg hans lög eru samin liggjandi á maganum á umferðareyju með höfuðið inni í hanskahólfi úr Lödu Sömöru. Einnig tengir hann mörg laga sinna við fælni sína en hann hefur meðfæddann ótta við notaða tepoka. Hann reynir mjög að takast á við fælni sína með því að tengja hana við lagasmíðarnar eða einhvern þátt í sköpunarferlinu. Sem dæmi má nefna að hann tók upp eitt laganna af nýjustu plötu sinni, Bakvið þykka spjaldið í herbergi fullu af ísbjörnum.
...dæmi um dag í lífi Pers:
Per kemur brosandi sínu sjálflýsandi brosi inn niður í upptökuverið. Gáski hans er greinilegur þar sem hann valhoppar niður tröppurnar með glitrandi grilfflur og salat á efrivörinni. Gegnum reykelsismökkinn í stúdíoinu má greina tvo félaga hans, þá Kjötar og Narfa sem sitja í hálfgerðu móki í leðursófa í horninu með tindátabunka í fanginu.
Users who liked this album also liked:
-
-
i
-
- Release Date:
-
- 7
- Reviews
-
- like
- 74
-
-
i
-
-
i
-
- Release Date:
-
- 1
- Reviews
-
- like
- 5
-
-
i
-
-
i
-
- Release Date:
-
- 2
- Reviews
-
- like
- 3
-
-
i
-
-
i
-
- Release Date:
-
- 5
- Reviews
-
- like
- 44
-
-
i
-
-
i
-
- Release Date:
-
- 45
- Reviews
-
- like
- 227
-
-
i
gogoyoko recommends:
-
-
i
-
- Release Date:
- 08 June 2008
-
- 0
- Reviews
-
- like
- 1
-
-
i
-
-
i
-
- Release Date:
- 05 May 2005
-
- 0
- Reviews
-
- like
- 7
-
-
i
-
-
i
-
- Release Date:
- 01 January 2005
-
- 0
- Reviews
-
- like
- 0
-
-
i
-
-
i
-
- Release Date:
- 10 May 2010
-
- 0
- Reviews
-
- like
- 0
-
-
i
-
-
i
-
- Release Date:
- 05 August 2009
-
- 0
- Reviews
-
- like
- 2
-
-
i
Write a review for Kysstu mig þungi Spánverji
Maximum 3000 characters
Visit Artist Profile
Share this album
Flattr this
- Genre: Other
- Format: Album, MP3, 320 kbps
- Release Date: 23 October 2004
- Hearted: 2 times
Average user rating
6 ratings
Rate this!
5


