Label:

Geimsteinn

  •  
label avatar

Geimsteinn er fjölskyldufyrirtæki stofnað af Rúnari Júlíussyni og Maríu Baldursdóttir á vordögum 1976 og er elsta starfandi hljómplötuútgáfan hér á landi. Fyrirtækið hefur gefið út mikið af tónlist af ýmsum toga, 239 hljómplötur með listamönnum á borð við:
Hljóma, Trúbrot, Lónlí Blú Bojs, Rúnar Júlíusson, Gylfa Ægisson, Bjartmar Guðlaugsson, Deep Jimi and the The Zep Creams, Æla, Fálka frá Keflavík, Hjálma, Lada Sport, Klassart, Baggalút, Brain Police og svo mætti lengi telja.

Hljóðverið var opnað árið 1982 og er eitt elsta hljóðver á Íslandi í dag. Fjölmargir listamenn hafa hljóðritað í hinu fullkomna hljóðveri Upptökuheimili Geimsteins og má þar nefna: Rúnar Júlíusson, Bubbi Morthens, Megas, Björgvin Halldórsson, Egill Ólafsson, Þórir Baldursson, Eyþór Gunnarsson, Sverrir Stormsker, Trabant, Kolrassa Krókríðandi, Hjálmar, Baggalútur, Lada Sport, KK, Mammút, Gavin Portland, I adapt, Védís og Fabúla.

Contact: bjorgvin att geimsteinn.is